Við bjóðum upp á alhliða þjónustu í stafrænni markaðssetningu fyrir öll fyrirtæki og sérfræðingar okkar búa yfir yfirgripsmikilli þekkingu á því sviði.
Með okkar hjálp getur þitt fyrirtæki náð markmiðum sínum á einfaldan og öruggan hátt.
Sem stafræn auglýsingastofa leggjum við fyrst og fremst áherslu á stafræna miðla.
Engu að síður notum við einnig hefðbundnari markaðsaðferðir þar sem við á til að tryggja hámarksárangur. Við bjóðum upp á mikið úrval sérsniðinna markaðsleiða og aðlögum okkur að þörfum hvers viðskiptavinar.
SAHARA heldur utan um virkni fyrirtækja á öllum gerðum samfélagsmiðla. Við mótum skýra stefnu og áætlun fyrir hvert og eitt fyrirtæki, tökum að okkur efnissköpun og sjáum um birtingar, kostanir og samantektir.
SAHARA heldur utan um virkni fyrirtækja á samfélagsmiðlum og Google. Við mótum skýra stefnu og áætlun fyrir hvert og eitt fyrirtæki, tökum að okkur efnissköpun og sjáum um birtingar, kostanir og samantektir.
SAHARA hefur um árabil framleitt auglýsingar og myndbönd sem vekja athygli á stafrænum miðlum þar sem fersk hugmyndasmíð fléttast saman við flottar útfærslur í mynd og hljóði, hreyfihönnun og áherslugrafík.
SAHARA býður upp á alhliða birtingaþjónustu þar sem við tryggjum þínum skilaboðunum rétta boðleið til markhópsins með sem lægstum tilkostnaði. Ráðgjöf, birtingaáætlanir, greiningar og gögn. Fagleg og hagstæð nálgun.
Hjá SAHARA gerum við hraðar, notendavænar vefsíður sem eru hannaðar með tilliti til leitarvélabestunar og virka í öllum snjalltækjum. Gerð spjallmenna er í örum vexti hjá okkur enda mörg tækifæri og óþrjótandi möguleikar þar í boði.
Hjá SAHARA starfa færir grafískir hönnuðir, margmiðlunarhönnuðir og textasmiðir. Við leggjum áherslu á að hvert fyrirtæki eða vörumerki sé með rödd og útlit sem hæfir því og tökum að okkur að móta ímynd þess frá A til Ö.
SAHARA FÉKK GULL OG SILFUR
Þrír starfsmenn stafrænu auglýsingastofunnar SAHARA hafa gengið til liðs við stjórnendateymi og eigendahóp fyrirtækisins sem meðeigendur, eða „partners“.
„Við erum stolt af okkar samstarfi við Sahara. Það hefur einkennst af mikilli fagmennsku, útsjónarsemi og vilja til að ná raunverulegum og mælanlegum árangri í markaðssetningu. Stafrænn heimur kallar á djúpa stafræna þekkingu og lausnir sem henta hverju verkefni fyrir sig. Á því sviði hefur Sahara stimplað sig rækilega inn og reynst okkur hjá Öryggismiðstöðinni frábær ferðafélagi.“
Markaðsstjóri
„SAHARA auglýsingarstofa hefur hjálpað okkur mikið að markaðsetja Krauma, þau veita persónulega þjónustu og eru með mjög góð þekkingu á stafrænum miðlum. Frábært að vinna með þessu fyrirtæki.“
Framkvæmdarstóri
Horfðu á viðtöl við fyrirlesara sem stigu á svið á SAHARA Festival árið 2022.
Vottunin er alfarið byggð á svörum starfsfólks okkar um þeirra upplifun af vinnustaðnum.
“Great Place to Work” er alþjóðlega viðurkennd vottun og setur viðmiðið fyrir framúrskarandi starfsánægju starfsfólks víða um heim.
Hvort sem verkefnið er innan lands eða utan, stórt sem eða smátt erum við hér til að aðstoða þitt fyrirtæki að ná settu markmiði.